Notendaskilmálar korta
Skilmálar vefverslunar Norðurþings v/Íþróttamiðstöðvar viðskiptavinar
Velkomin í vefverslun Íþróttamiðstöðvar Norðurþings sem er í eigu og rekstri Norðurþings kt. 640169-5599, Ketilsbraut 7-9, 640 Húsavík. VSK nr. 09136.
Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Íþróttamiðstöðvar Norðurþings
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Íþróttamiðstöðvar í Norðurþingi samþykkir þú þessa skilmála.
- SKILGREININGAR
Eftirtalin hugtök hafa þessa merkingu þar sem þau koma fyrir í skilmálum þessum:
- Fullorðinn eru einstaklingar sem eru 18 ára og eldri.
- Skiptakort eru sundkort með inneign á ákveðinn fjölda ferða
- Tímabilskort eru kort sem gefið er út með nafni og kennitölu einstakling er aðeins til einkanota fyrir þann einstakling.
- Sundkortin veita aðgang að sundlaugum Norðurþings.
- Líkamsræktarkort veitir aðgang í líkamsræktir og sundlaugar Norðurþings
- Kortin eru sjálfsafgreiðslukort - NOTENDAREGLUR
- Skiptakort:
- hægt er að kaupa sundkort/skiptakort með inneign á ákveðinn fjölda ferða.
- fleiri en einn einstaklingur getur notað skiptakort.
- Tímabilakort:
- eru kort sem gefið er út fyrir ákveðinn einstakling og er til einkanota fyrir þann einstakling.
- eru aðgreind fyrir börn, fullorðna, aldraða og aðra skilgreinda hópa.
- kortið veitir ótakmarkaðar ferðir yfir fyrirfram skilgreint tímabil.
- GJALDSKRÁ
Norðurþing gefur árlega út gjaldskrá fyrir stofnanir Norðurþings. Gjaldskrá hvers árs er aðgengileg á heimasíðu Norðurþings nordurthing.is og hangir uppi á starfsstöðum. - SKILAREGLUR
Skiptakortum er ekki hægt að skipta yfir í tímabilskort. Ekki er hægt að leggja inn sundkort tímabundið. Ekki er boðið upp á framselja tímabilskort á aðra kennitölu. Ekki er hægt að skila eða fá kort endurgreidd. - VANEFNDIR, LOKUN KORTA
Ef korthafi gerist brotlegur við notendareglur samkvæmt skilmálum þessum hefur Norðurþing heimild til að afturkalla og loka korti fyrirvaralaust. - GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina. - MISNOTKUN Á KORTUM
Verði einstaklingur uppvís að því að framvísa/nota tímabilakort sem skráð er á annan einstakling hefur Norðurþing heimild til þess að loka viðkomandi korti. - PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.
